Sögusýningar
Bæklingar



Jólakort til styrktar Lyngási

jólakort Sögumiðlunar
Jólakort Sögumiðlunar til styrktar Lyngási.


Sögumiðlun framleiddi jólakort í fyrsta sinn og seldi í desember síðastliðnum. Allur ágóði af sölu kortanna rann til Lyngáss, dagvistar fyrir fötluð börn og ungmenni, sem er hluti af Styrktarfélaginu Ás. Á Lyngási dvelja fötluðustu börnin hverju sinni. Það góða starf sem þarna fer fram skiptir sköpum í lífi þessara einstaklinga og fjölskyldna þeirra.

Alls söfnuðust um 150.000 krónur og þökkum við kærlega öllum þeim sem hjálpuðu okkur að selja kortin sem og þeim sem þau keyptu. 

Skoða kortið: framhlið og bakhlið.